Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2013 13:45
Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar KSÍ, segir að Kristinn Jakobsson hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann rak FH-inginn Guðjón Árna Antoníusson af velli í gær. Guðjón Árni fór mjög harkalega í Ragnar Pétursson, leikmann ÍBV, með þeim afleiðingum að hann fékk nokkuð slæmt höfuðhögg - eins og sést í meðfylgjandi myndbandi. Um óviljaverk virðist vera að ræða en Gylfi Þór segir að knattspyrnulögin taki á þessu með skýrum hætti. „Hér áður fyrr var talað um viljandi og óviljandi brot í knattspyrnulögunum en því hefur nú verið breytt. Nú er aðeins talað um þetta í tengslum við hendi,“ sagði Gylfi í samtali við Vísi í dag. „Ef leikmaður skapar andstæðingi sínum hættu af gáleysi, skeytingarleysi eða heift þá ber að refsa fyrir það, samkvæmt núverandi orðalagi. Leikmaðurinn á semsagt að vita það þegar hann fer í sína aðgerð að hann getur verið að skapa andstæðingi sínum mikla hættu.“ „Ef að þú horfir glöggt á myndbandið sérðu að leikmaðurinn er fyrst og fremst að hugsa um að meiða sig ekki sjálfan. Hann er lítið að hugsa um hvort hann geti skaðað andstæðinginn, þó að hann taki hann í fangið og huggi hann eftir á.“ „Viljandi eða óviljandi er því ekki aðalatriðið í þessu. Leikmenn verða að koma fram af tillittsemi við andstæðinginn. Ákvörðunin um rauða spjaldið var því hárrétt að mati dómaranefndar KSÍ.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings